Starfsmannafélag Fjarðabyggðar
    <language>is</language>
    <generator>www.123.is</generator>
Ný heimasíða.
      <description>Ný heimasíða Starfsmannafélags Fjarðabyggðar hefur nú litið dagsins ljós.Slóðin á hana er www.staffelag.com Það sem okkur langar helst að benda á eru orlofsmálin,  biðjum við ykkur að sýna okkur smá þolinmæði bæði þar sem við erum nú að byrja á nýju kerfi við bókanir og  vegna breytinga á umsjón orlofsmála.  Til stendur að láta reyna á dagatal sem birtist þá neðst á síðunni undir Orlofsmál / Fyrirspurnir og bókanir en það er einungis til viðmiðunar og ekki uppfært nema tvisvar til þrisvar í viku til að byrja með.Við  bjóðum nú  upp á að skrá sig rafrænt í gegnum síðuna með því að fylla út form og senda inn gegnum vefinn, en svo má alltaf hringja í símanúmer STAF 8939105 eða síma formanns 8950166.  Umsóknir eru yfirfarnar einu sinni á dag svo ekki örvænta þó þú fáir ekki svar innan skamms tíma.Fyrir sérstakar úthlutanir s.s. páska, sumar og jól/áramót þá koma inn sérstök skráningarform fyrir þau tímabil þegar það á við. Til hagræðingar fyrir félagið langar okkur að biðja þig sem þetta sérð og ert félagsmaður í STAF að skrá þig á tölvupóstlista félagsins. https://forms.gle/GaK2NXWoAGF7HKu46</description>
Kæru félagar
      <description>Desemberuppbót 2019Að gefnu tilefni er athygli vakin á að þar sem kjarasamningar okkar runnu út 1.apríl s.l. og ekki hafa náðst samningar ennþá, mun desemberuppbót þessa árs verða miðuð við síðastgildandi kjarasamning (eða vegna ársins 2018). Eðlilegt er að starfsmenn fái greidda desemberuppbót síðasta árs á þeim tímapunkti sem kjarasamningur greinir og fái svo leiðréttingu ef samið verður um hærri desemberuppbót í komandi kjarasamningum. Desemberuppbót / persónuuppbót 2019Persónu uppbótin miðast við 100% starfshlutfall og greiðst út 1.des. 2019Fyrir bæjarstarfsmenn STAFÁ árinu 2019  Kr. 113.000Fyrir ríkisstarfsmenn STAFÁ árinu 2019 Kr. 89.000 </description>
Kjaraviðræður
      <description>Samningseiningar BSRB funduðu í dag í kjölfar þess að það slitnaði upp úr viðræðum við ríkið í gær. "Fulltrúar aðildarfélaga BSRB eru einhuga um að næsta skref er að vísa deilunni gagnvart ríkinu til ríkissáttasemjara," segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.Fundurinn í dag var gagnlegur og mikil samstaða ríkti þar. "Viðræðurnar við ríkið hafa ekkert þokast undanfarið og því lítið eftir að gera en að vísa deilunni til ríkissáttasemjara. Á fundinum kom skýrt fram að fyrirliggjandi tilboð ríkisins er með öllu óásættanlegt. Það er ekki neinn að fara að ganga að þessu tilboði," segir Sonja.Helst er deilt um kröfu BSRB um styttingu vinnuvikunnar í 35 stundir án kjaraskerðingar, með meiri styttingu fyrir vaktavinnufólk. Í tilboði ríkisins var miðað áfram við 40 stunda vinnuviku en opnað á möguleika á að samið yrði um að stytta vinnuvikuna á einstökum vinnustöðum með því að sleppa kaffitímum og gefa eftir fleiri kjarasamningsbundin réttindi. Þá á enn eftir að taka til umræðu jöfnun launa milli markaða, launaþróunartryggingu og launaliðinn."Tilboð ríkisins felur í raun í sér að opinberir starfsmenn eiga að borga fyrir styttinguna og gott betur. Ætlunin er að taka meira af kjarasamningsbundnum réttindum en okkar félagsmenn myndu fá í staðinn og það sjá allir að það gengur einfaldlega ekki upp," segir Sonja.</description>
Jóla og  áramóta úthlutun
      <description>Umsóknarblöð fyrir jóla og  áramóta úthlutun STAF 2019 er að finna hér inn á síðunni undir skrár.Skrár / Orlofsmál / Umsóknarblað / Jól og áramót 2019</description>
Verðskrá STAF
Af kjarasamningum.
      <description>Samkomulag hefur náðst við Samband íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg um framhald kjaraviðræðna. Eins og í samkomulagi sem gert var við ríkið er kveðið á um að launagreiðendur greiði félagsmönnum aðildarfélaga BSRB , 105 þúsund króna innágreiðslu þann 1. ágúst næstkomandi. Ekki hefur ennþá verið gengið frá samskonar samkomulagi við SFV, en verið að vinna að því og lítil ástæða til annars en það gangi eftir fljótlega. Greiðslan er til komin vegna tafa sem orðið hafa á gerð kjarasamninga. Í nýjum viðræðuáætlunum kemur fram að stefnt sé að því að ljúka nýjum kjarasamningin fyrir 15. september, en samningar flestra aðildarfélaga BSRB hafa verið lausir frá byrjun apríl.Í samningaviðræðum við ríkið, Samband íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg hefur verið unnið að samkomulagi um útfærslu á styttingu vinnuvikunnar, launaþróunartryggingu og fleira og leggur bandalagið áherslu á að þessi flóknu mál verði unnin faglega.Í endurskoðaðri viðræðuáætlun við ríkið kemur fram að þar sem langt sé síðan kjarasamningar hafi runnið út verði greidd innágreiðsla inn á nýja samninga, 105 þúsund krónur. Samskonar ákvæði eru í endurskoðuðum áætlunum vegna samninga við Samband íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg sem aðildarfélög BSRB hafa undirritað, eða munu undirrita á næstu dögum.Þar er einnig kveðið á um friðarskyldu til 15. september og að stutt hlé verði gert á viðræðum á meðan skrifstofa Ríkissáttasemjara er lokuð í sumar, enda hefur reynslan sýnt að lítið hefur gengið í kjaraviðræðum yfir hásumarið.</description>
Lífeyrisnámskeið
      <description>Góðir félagsmenn.Stjórn STAF biður ykkur vinsamlega um að skrá ykkur á námskeiðið sem að verður vegna lífeyrismála 6.mai n.k í stofu 1 í VA.Sendið skráningu til stafstjorn@gmail.comStjórn STAF</description>
Lífeyrismál
Aðalfundur
      <description>Góðir félagarVið viljum minna á aðalfund STAF, sem að verður miðvikudaginn 3 apríl í Nesbæ kaffihúsi kl. 19.30Venjuleg aðalfundastörf.Lagabreytingar vegna starfsmenntunarsjóðs.Súpa og brauð í boði.Stjórnin.</description>
Sumarúthlutun 2019
      <description>Umsóknarblöð fyrir sumarúthlutun STAF 2019 er að finna hér inn á síðunni undir skrár.Skrár / Umsóknarblað / Sumar 2019</description>
Aðalfundur.
      <description>Aðalfundur STAF verður 3 apríl í Nesbæ, kaffihúsi kl. 19.30. Dagskrá fundarins er eftirfarandi :Venjuleg aðalfundastörf.Skýrsla formanns.Skýrsla gjaldkera.Kosning í nefndir.Kosning stjórnar.Lagabreytingar vegna starfsmenntunarsjóðs.Önnur mál.Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna á fundinn. Það þarf enginn að hafa áhyggjur af að vera kosinn í stjórn.Súpa og kaffi í boði.Stjórn STAF.</description>
Lækjarsmári 4
      <description>Nú er framkvæmdum að mestu lokið í íbúð okkar að Lækjarsmára 4, Kópavogi og finnst okkur hafa vel tekist til með verkið.Búið er að skipta um parket, mála, kaupa ný húsgögn og rúm en stærsta breytingin er á baðinu en þar er kominn nýr flísalagður sturtubotn þar sem baðkarið var og veggir og gólf einnig flísalagðir. Nýtt wc og ný innrétting er einnig á baðinu.Þetta var dýr og metnaðarfull aðgerð sem farið var í og er það von stjórnar STAF að félagsmenn allir gangi vel um og skili vel af sér að lokinni leigu. Munið að við eigum þessa íbúð öll saman.</description>
Verðskrá STAF 2019
      <description>  Starfsmannafélag Fjarðabyggðar  VERÐSKRÁ   2019  Kjarnaskógur :          Nóttin - fyrstu tvær (10.000 kr.)         5.000             Viðbótarnótt         4.000             Vikuleiga,  föstud.-föstud.         22.000                 Lækjasmári :             Fyrsti sólahringur         7.000             Annar sólahringur         5.000             Viðbótarnótt         4.000             Vikuleiga,  föstud.-föstud.         24.000                   Leiguverð fyrir utanfélgsmenn:                sólarhringurinn         8.000             Vikuleiga,           48.000        Kort og miðar :          Hótelmiðar  Fosshótel         8.000             Hótelmiðar  Edda    (sumar)         8.000             Hótelmiðar  Icelandair    (vetur)         8.000                       Útilegukortið         9.000        </description>
Viðhorfskönnun
      <description>Ágæti félagsmaður.    Aðildafélög Samflots, FOSA, Fos-Vest., SDS, St. Fjallabyggð, St. Fjarðabyggð, STAVEY og St. Húsavíkur, leita nú til félagsmanna sinna með vandaða viðhorfs-könnun um kröfur og önnur helstu atriði í komandi kjarasamningum.  Félögin eru að vinna að kröfugerð fyrir komandi kjarasamninga við sveitarfélög og ríki og mun þitt svar hafa áhrif á þá vinnu. Einnig er spurt um annað, s.s. líðan í starfi, um starfsumhverfi og launakjör, um afstöðu til stéttarfélags og um sameiningu stéttarfélaga ásamt öðru.   Það er fyrirtækið  Zenter-ransóknir sem sér um þessa könnun fyrir okkur og vinnslu úr henni og þátttaka tekur um 7 til 9 mínútur.   Formannaráð Samflots hvetur félagsmenn aðildarfélaganna til að taka þátt í þessari könnun sem verður send á netfang félagsmanna n.k fimmtudag og hægt er að svara á netinu. Ágæti félagsmaður STAF, sýnum hug okkar í verki og tökum þátt því eins og áður sagði þá mun þitt svar hafa áhrif.   Eftir að könnun lýkur verða dregin út nöfn þriggja svarenda sem hver um sig fá  20 þúsund króna gjafabréf.  </description>
Páskaúthlutun 2019
      <description>Ágætu félagsmennUmsóknarblöð fyrir páskaleigu  fyrri og seinni og vegna sumardagsins fyrsta 2019 má finna hér á síðunni undir skrár.Skrár / umsóknarblað / páskar 2019</description>
Lækjarsmári 3
      <description>Stjórn STAF hefur ákveðið að kominn sé tími til að gera ákveðnar endurbætur á íbúð félagsins í Lækjarsmára 3, Kópavogi.Það sem á að gera er m.a setja nýtt parket á gólf, mála íbúðina, kaupa nýjan sófa og rúm, skipta um gardínur, og einnig ætlum við að taka baðið í gegn.Þar af leiðandi verðu íbúðin lokuð til útleigu frá 7 janúar 2019 til 15 feb. 2019Vonandi getum við opnað íbúðina á tilsettum tíma enbiðjum fólk um að fylgjast með framvindu mála á heimasíðu STAF.</description>
Jóla- og áramótaúthlutun
      <description>Ágætu félagsmenn !Umsóknareyðublað vegna jóla- og áramótaúthlutunar STAF 2018 má finna hér á síðunni undir skrár.Skrár / Orlofsmál / Umsóknarblað jól og áramót 2018.Orlofsnefnd STAF</description>
Ótitlað
Verðskrá STAF 2018
Sumarúthlutun
      <description>Þar sem lítið var um umsóknir  í úthlutun hjá okkur  vegna sumarsins eru  margar vikur lausar hjá okkur  í Lækjasmára og Kjarnaskógi, að vísu var júlí mánuður vinsælastur ;-) Endilega  skáið ykkur sem fyrst  í síma 893 9105Orlofsnefnd STAF</description>
Sumarúthlutun
      <description>  Umsóknarblað vegna sumarúthlutunnar er komið  hér inn og má finna  hér á síðunni undir skrár:  Skrár / Umsóknarblað / Umsóknarblað sumarið 2018     </description>
BB gisting  í Keflavík
      <description>Athugið að finna má auglýsinguna um verð og annað hjá  BB gistingu undir: skrár / orlofsmál / BB Starfsmannafélag Fjarðabyggðar</description>
Gistingar
Umsókn um páskaúthlutun
      <description>Umsóknarblöð fyrir páskaútleigu fyrri og seinni og vegna sumardagsins fyrsta 2018 má finna hér á síðunni undir skrár.Skrár / umsóknarblað / páskar 2018</description>
Jóla- og áramáta úthlutun 2017
      <description>Ágætu félagsmennUmsóknareyðublað vegna jóla- og áramótaúthlutunnar STAF 2017 má finna hér á síðunni undir skrár.Skrár / Orlofsmál/ Umsóknarblað jól og áramót 2017.Orlofsnefnd STAF</description>
Hótelmiðar
      <description>Ágætu félagarSTAF  vill minna félagsmenn að  við erum  með hótelmiða til sölu sem  gilda  í vetur.Fosshótel miðarnir eru í gildi  allt árið   kosta  kr. 6.000.Og nú erum við komin með  Icelandair Hotels  miða  líka sem gilda  frá 1. okt. 2017 til 30. apríl 2018.Verð á  þeim  er kr. 6.000   án  morgunmatar.Miðarnir eru til sölu  á skrifstofu HSA.</description>
Lausar vikur
      <description>Nú eftir úthlutun í orlofshúi /íbúð  okkar  eru ennþá lausar víkur.Í Lækjasmára:  21/7 - 28/728/7 - 4/84/8 - 11/811/8 - 18/818/8 - 25/825/8 -1/9Í Kjarna:19/5 - 26/526/5 - 2/628/7 - 4/818/8 - 25/825/8 - 1/9</description>
Sumarúthlutun
      <description>Umsóknarblað vegna sumarúthlutunnar er komið  hér inn og má finna  hér á síðunni undir skrár:Skrár / Umsóknarblað / Umsóknarblað sumarið 2017</description>
Umsókn um páskaúthlutun
      <description>Umsóknarblöð fyrir páskaútleigu fyrri og seinni  og vegna sumardagsins fyrsta 2017 má finna hér á síðunni undir skrár.Skrár / umsóknarblað / páskar 2017</description>
Festun á aðalfundi um sólahring
      <description>Aðalfundur haldinn 21 júní 2016 í Nesbæ kl:20</description>
Aðalfundur
      <description>                                                                                          Aðalfundur STAF   verður haldinn í Nesbæ (kaffihúsi)  Mánudaginn 20. júní 2016  kl. 20.00.     Dagskrá:  1.       Venjuleg aðalfundarstörfSkýrsla stjórnarÁrsreikningar lagðir framKosning stjórnar                                                                   2.    Önnur mál                          Félagsmenn hvattir til að mæta.  Kaffi og meðlæti  Stjórn STAF                                   </description>
Úthlutun lokið
      <description>Ágætu félagar !Nú er sumarúthlutun orlofshúsa okkar lokið og þá standa þessar vikur eftir lausar sem hægt er að sækja um:Í Kjarnaskógi:27/5 - 3/624/6 - 1/722/7 - 29/729/7 - 5/812/8 - 19/819/8 - 26/826/8 - 2/9Í Lækjarsmára:3/6 - 10/617/6 - 24/624/6 - 1/71/7 - 8/78/7 - 15/729/7 - 5/812/8 - 19/819/8 - 26/826/8 - 2/9Orlofsnefnd STAF</description>
Sumarúthlutun 
      <description>Ágætu félagar! Skilum á umsóknum fyrir sumraúthlutun hefur verið framlengd til 16. apríl n.k.Umsóknarblöð  fyrir sumarið er að finna hér undir  skrár.</description>
Sumarúthlutun STAF
      <description>  Ágætu félagar!  Úthlutun fyrir sumarið 2016  þarf að skila í síðasta lagi 10. apríl nk.  Sumarorlof 2016 hefst 15. maí og stendur til 25. september.  Umsóknarblöð  fyrir sumarleigu 2016  má finna hér á síðunni undir skrár.  Skrár / Orlofsmál /umsóknarblað sumar 2016.  </description>
Páskaúthlutun
      <description>  Ágætu félagar!  Vil minna á að umsóknarblöð fyrir páskaleigu fyrri og seinni og vegna sumardagsins fyrsta 2016 má finna hér á síðunni undir skrár. Skrár / umsóknarblað / páskar 2016.    </description>
Niðurstaða atkvæðagreiðslu um SNS kjarasamning
      <description>Sameiginlegri atkvæðagreiðslu um samkomulag um breytingu og framlengingu á kjarasamningi Samflots, f.h. Starfsmannafélags Fjallabyggðar, Starfsmannafélags Fjarðabyggðar, Félags opinberra starfsmanna á Vestfjörðum, Félags opinberra starfsmanna á Austurlandi, Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu, Starfsmannafélags Vestmannaeyjabæjar og Starfsmannafélags Húsavíkur og SNS f.h. Sambands íslenskar sveitarfélag með gildistíma frá 1. maí 2015 til 31. mars 2019, lauk í gær. Atkvæði voru talin í morgun.                                                        Niðurstaða atkvæðagreiðslunar er sem hér segir:Á kjörskrá voru:      1160 Atkvæði greiddu:      328 eða 28.28% Já sögðu:                 312 eða 95.12% af greiddum atkvæðum Nei sögðu:                 14 eða   2.27% af greiddum atkvæðum Auðir seðlar:               2 eða    0.61% af greiddum atkvæðum Samningurinn er því samþykktur. Þetta tilkynnist hér með, f.h. Samflots Bæjarstarfsmannafélaga Guðbjörn Arngrímsson formaður.</description>
Undirritun kjarasamnings við Samband íslenska sveitarfélaga
      <description>Undirritun kjarasamnings við Samband íslenska sveitarfélaga fór fram undir stjórn ríkissáttasemjara um áttaleytið í gærkveldi þann 20. nóvember. Samningurinn er á svipuðum nótum og þeir samningar sem gerðir hafa verið á opinberum vinnumarkaði undanfarið og tekur mið af því rammasamkomulagi sem aðilar vinnumarkaðarins gerðu í október síðast liðinn.Gildistími samningsins er frá 1. maí 2015 til 31. mars 2019 og verður kynntur félagsmönnum á næstu dögum.Helstu breytingar eru þessar:  Við upphaf samnings eða 1. maí 2015 hækka launataxtar um 25.000 kr. en þó að lágmarki um 7,7%.  Þann 1. júní 2016 hækka launataxtar um 15.000 kr. en þó að lágmarki um 5,5%.  Þann 1. júní 2017 kemur inn ný launatafla þar sem bil á milli launaflokka verður leiðrétt í 1,1% á milli flokka, til samræmis við þá niðurstöðu sem samið var um 1. maí 2014, lágmarki 2,5% hækkun sem er tryggð. Þann 1. júní 2018 hækka launataxtar um 2%. Sérstök eingreiðsla kemur 1. febrúar 2019 að upphæð kr. 42.500, miðað við þá sem eru í fullu starfi í desember 2018 og enn í starfi í janúar 2019. Greitt er hlutfallslega fyrir þá sem eru í hlutastarfi. Desemberuppbót hækkar um 21% á samningstímanum og fer í 113.000 kr. í lok samnings og orlofsuppbætur um 23% verða 48.000 kr. í lok samningstímans.  Persónuuppbót/desemberuppbót á samningstímanum verður sem hér segir:Á árinu 2015 kr. 100.700.Á árinu 2016 kr. 106.250.Á árinu 2017 kr. 110.750.Á árinu 2018 kr. 113.000.Guðbjörn Arngrímssonformaður</description>
Niðurstaða í atkvæðagreiðslu starfsfólks um ríkissamninga
      <description>Atkvæðagreiðsla um samkomulag um breytingu og framlengingu á kjarasamningi Samflots, f.h. Starfsmannafélags Fjallabyggðar, Starfsmannafélags Fjarðabyggðar, Félags opinberra starfsmanna á Vestfjörðum, Félags opinberra starfsmanna á Austurlandi, Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu, Starfsmannafélags Vestmannaeyjabæjar og Starfsmannafélags Húsavíkur og SNR f.h. ríkisins með gildistíma frá 1. maí 2015 til 31. mars 2019.Á kjörskrá voru:    155 Atkvæði greiddu    109 eða 70.32% Já sögðu                 77 eða 70.64% af greiddum atkvæðum Nei sögðu               14 eða 12.84% af greiddum atkvæðum Auður seðill              1 eða   4.55% af greiddum atkvæðum Samningurinn er því samþykktur. Guðbjörn Arngrímsson formaður Samflots.</description>
Viðræðum við sveitarfélögin slitið - deilunni vísað til ríkissáttasemjara
      <description>Samninganefnd  bæjarstarfsmannafélaga innan BSRB sem eru í samfloti, sem og stéttarfélög innan Starfsgreinasambandsins slitu síðdegis í dag kjaraviðræðum við samninganefnd sveitarfélaganna og vísuðu deilunni til ríkissáttasemjara. Arna Jakbína Björnsdóttir, formaður Kjalar, sem er í forsvari fyrir samstarfið segir hvorki hafa gengið né rekið síðustu þrjá sólarhringa í viðræðum um launalið nýs kjarasamings en þar er ásteitingarsteinninn öðru fremur."Ástæðan fyrir þessari stöðu er fjölþætt. Nýgert SALEK samkomulag er augljóslega að trufla viðræðurnar en líka nýgert starfsmat sem stéttarfélögin og sveitarfélögin stóðu að. Vissulega veldur það kostnaðarauka fyrir sveitarfélögin en vert er að minna á að unnið hefur verið að endurnýjuðu starfsmati síðustu sex árin og margir starfsmenn sveitarfélaganna eru að fá leiðréttingu miðað við sitt starf og ábyrgð. Sveitarfélögin ætla sér hins vegar að blanda starfsmatshækkunum inn í kjarasamningagerðina núna, draga með öðrum orðum úr launahækkunum á samningstímanum til að mæta starfsmatinu. Á það föllumst við að sjálfsögðu ekki og höfum teygt okkur eins langt og mögulegt er að að mæta sveitarfélögunum, m.a. með tilboði um dreifingu launahækkana á samningstímanum. Það hefur því miður engu skilað við samningaborðið og því eigum við ekki annarra kosta völ en vísa deilunni til ríkissáttasemjara. Samningsviljann skortir að okkar mati hjá samninganefnd sveitarfélaganna," segir Arna Jakobína.</description>
Styrktarsjóður BSRB vill minna á .
      <description>Styrktarsjóður BSRB vill benda félagsmönnum á að til þess að geta fengið styrk vegna ársins 2015 er nauðsynlega að skila inn umsóknum og fylgigögnum í síðasta lagi föstudaginn 18. desember nk.      Þetta á bæði við um þá sem hafa sent inn umsókn á netinu og eiga eftir að skila inn fylgigögn og einnig þá sem eiga eftir að sækja um styrk hjá sjóðnum.      Komi umsóknir eftir 18. desember nk. munu umsóknir falla yfir á rétt ársins 2016.      Að gefnu tilefni benda starfsmenn sjóðsins á að skila þarf frumriti reikninga til sjóðsins, reikningar sendir með tölvupósti teljast ekki gildir.      Áríðandi er að þið kynnið þetta fyrir félagsmönnum ykkar.     Bestu kveðjur,   Starfsfólk Styrktarsjóðs BSRB  S: 525-8380   </description>
Samið við ríkið
      <description>Samflotsfélögin undirrituðu á seinni partinn í gær, kjarasamning við samningnefnd Ríkisins. Samningurinn er á líkum nótum og SFR stéttarfélag í almannaþjónustu gerði við ríkið.Samningurinn gildir frá 1. maí 2015 til 31. mars 2019. Upphafshækkun er 25.000 kr. eða að lágmarki um........... 7,7%, 1.06.2016............... 6,5%1.06.2017  Ný launatafla. Við innröðun skal hverjum starfsmanni tryggð 4,5% hækkun, 1.06.2018 ...............3% Sérstök eingreiðsla, 55.000 kr., greiðist hverjum starfsmanni miðað við fullt starf og sem er við störf í desember 2018 og er enn í starfi í janúar 2019. Upphæðin greiðist hlutfallslega miðað við starfstíma og starfshlutfall í desember.Persónuuppbót (desemberuppbót)       Á árinu 2015          78.000 kr.  Á árinu 2016          82.000 kr.  Á árinu 2017          86.000 kr.  Á árinu 2018          89.000 kr.OrlofsuppbótÁ árinu 2015          42.000 kr.Á árinu 2016          44.500 kr.Á árinu 2017          46.500 kr.      Á árinu 2018          48.000 kr.Samningurinn verður kynntur á næstu dögum í aðildarfélögum Samflots en miðað er við að atkvæðagreiðslu um hann verði lokið í síðasta lagi 18. nóvember næstkomandi.f.h. samningarnefnd Samflots,Guðbjörn ArngrímssonFormaður Samflots</description>
Jóla- og áramótaúthlutun 2015
      <description>Ágætu félagar!Umsóknareyðublað vegna jóla- og áramótaúthlutunnar STAF 2015 má finna hér á síðunni undir skrár.Skrár / Orlofsmál / Umsóknarblað jól 2015.Einnig er búið að senda ykkur það í emaili í dag.</description>
Margrét Björnsdóttir
      <description>    Fyrrverandi formaður STAF lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað 13. júlí 2015 eftir löng og erfið veikindi.   Margrét fæddist í Neskaupstað 18. nóvember 1942. dóttir hjónanna Björns Björnssonar , kaupmanns  í Neskaupstað og konu hans  Guðlaugar  Ingvarsdóttur húsmóður.  Hún varð formaður Starfsmannafélags Neskaupstaðar, árið 1986  síðar Fjarðabyggðar eftir sameiningu sveitarfélaga á Austfjörðum árið 1998. en af formennskunni lét hún árið 2002. Hún starfaði í ýmsum nefndum á vegum BSRB og sat um árabil í stjórn BSRB, sat um tíma í stjórn Styrktarsjóðs BSRB Hún lét að sér kveða í verkalýðsbaráttunni og gegndi lykilhlutverki í kjarasamningum starfsmanna sveitarfélaganna  Hún giftist Má Sveinssyni og eignuðust þau 3 börn.Ég votta Má og fjölskyldu hans samúð mínaJón Guðmundsson formaður</description>
Starfsmat
      <description>Nýtt starfsmat skilar 3,3% meðalhækkun launaNýtt starfsmat skilar 3,3% meðalhækkun launa"Það er mikill áfangi og ánægjuefni að endurskoðun starfsmatsins sé lokið enda hefur þessi vinna staðið yfir í langan tíma. Mestu skiptir að hún skilar yfirgnæfandi meirihluta okkar félagsmanna hækkun launa en hún er að jafnaði um 3,3%," segir Arna Jakobína Björnsdóttir, formaður Kjalar - stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu, um endurskoðun starfsmatskerfis sveitarfélaganna sem nú liggur fyrir. Breytingarnar þýða að laun fjölmargra félagsmanna aðildarfélaga BSRB sem semja við sveitarfélögin muni hækka samkvæmt endurskoðuðu  starfsmatskerfi.Endurskoðun starfsmatsins tímabærStarfsmatskerfið er samstarfsverkefni sveitar- og stéttarfélaga og um það samið í kjarasamningum en kerfið er að breskri fyrirmynd. Kerfið var innleitt hér á landi árið 2002 en hefur síðan ekki verið uppfært til samræmis við þróun þess í Bretlandi. Sérstök Verkefnastofa starfsmats var sett á laggirnar af Reykjavíkurborg og Sambandi íslenskra sveitarfélaga til að vinna tillögur að breytingum á kerfinu og fól endurskoðunin meðal annars í sér breytingar á spurningakerfi, þrepa- og þáttaskilgreiningum og túlkun einstakra þátta kerfisins. Framkvæmdanefnd starfsmatsnefndar Sambands Íslenskra sveitarfélaga og viðsemjenda þess vann síðan úr tillögunum og tók á grundvelli þeirra og upplýsinga frá sveitarfélögum um innstak starfa ákvörðun um breytingar á mati einstakra starfa. Í þessu fólst að leitað var eftir starfslýsingum frá öllum sveitarfélögunum og kom í þessari vinnu skýrt í ljós að gerðar eru meiri kröfur en áður um gæði þjónustu.Launabreytingar afturvirkarEndurskoðun starfsmatskerfisins er víðtæk, sem best sést af því að hún nær til um 700 starfsheita hjá öllum sveitarfélögum landsins. Eins og áður segir er hækkun í launum að meðaltali 3,5% og því eru dæmi um starfsmenn sem eru að fá talsvert meiri hækkun í gegnum endurskoðunina. Störfin voru metin út frá samtals þrettán þáttum en þrír þeirra hafa mest áhrif á stiganiðurstöðu starfanna, þ.e. ábyrgð á starfsfólki, hugrænar kröfur starfa og líkamleg færni.Í örfáum tilvikum eru dæmi um lækkun í þessari kerfisbundnu endurskoðun en í þeim tilvikum heldur viðkomandi starfsmaður sínum launum óbreyttum en nýir starfsmann taka laun samkvæmt gildandi starfsmati. Með öðrum orðum lækkar enginn starfsmaður í launum vegna þessara breytinga.Framkvæmdanefnd starfsmatsnefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðsemjenda sendir nú hverju og einu sveitarfélagi í landinu og viðkomandi stéttarfélagi endurskoðað starfsmat með leiðbeiningum um framkvæmd. Miðað er við að breyting á launaröðun starfsmanna samkvæmt nýju mati komi til framkvæmda 1. ágúst, en þó ekki síðar en 1. september en endurskoðunin gildir frá 1. maí 2014, samkvæmt launatöflu II í gildandi kjarasamningi. Sveitarfélögin hafa svigrúm til 1. október næstkomandi til að framkvæma þessa afturvirku launabreytingu.Unnið er að því að birta niðurstöður stiganiðurstöður starfa og tengingu þeirra við launaflokka.</description>
Frestun á kjaraviðræðum.
      <description>Tekið af heimasíðu SamflotsÍ gær, 30. júní, var skrifað undir samkomulag um frestun á kjaraviðræðum til ágústmánaðar við Samband íslenskra sveitarfélaga. Samkomulagið felur í sér að nái aðilar samkomulagi um framlengingu á kjarasamningi aðila fyrir lok septembermánaðar 2015 mun sú upphafshækkun sem um semst, eða ígildi hennar, gilda frá 1. maí 2015. Náist ekki samkomulag fyrir 30. sept. er SNS ekki bundin af fyrrgreindu tímamarki um gildistöku samninga.Samskonar samkomulag var gert af BSRB fyrir hönd aðildarfélaga þess, við samninganefnd Ríkisins, SNR.</description>
Fréttir af kjarasamningaviðræðum félagsins.
      <description>Ágætu félagar, Á fundi samninganefndar ríkisins við SLFÍ, LL og SFR sl. föstudag var gengið frá bókun í fundargerð hjá ríkissáttasemjara þess efnis að samningaviðræðum félaganna við ríkið verði frestað frá 1. júlí til 6.ágúst.  BSRB hefur nú gengið að sama samkomulagi um frestun viðræðna við ríkið fyrir hönd aðildafélaga sinna.Jafnframt var samþykkt ákvæði um að takist samningar milli félaganna og ríkisins fyrir 30. september muni gildistími þeirra samninga verða frá 1. maí sl.Einnig var í dag,  skrifað undir sambærilegt samkomulag við samninganefnd sveitarfélaga vegna bæjarstarfsmanna, af Samfloti sem STAF er aðali að</description>
Lausar vikur í orlofshúsum STAF
      <description>Ágætu félagar !Þar sem sumarúthlutun  orlofshúsa okkar er lokið, þá standa eftir örfáar vikur sem eru lausar.Það eru í Kjarnaskógi:4/9 til 11/9 201511/9 til 18/9 2015Í Lækjarsmára er þetta laust:29/5 til 5/6 20153/7 til 10/7 201524/7 til 31/7 20157/8 til 14/8 201528/8 til 4/9 20154/9  til 11/9 201511/9  til 18/9 2015Orlofsnefnd STAF</description>
Boðun Aðalfundar 2015
      <description>                                                                            Aðalfundur félagsins verður haldinn á Hildibrandhótel  fimmtudaginn 28.maí kl.20:00  léttar veitingar í boði.  Með von um að sjá sem flesta!  Stjórn STAF       Dagskrá aðalfundar er sem hér segir:   ·         kosning fundarstjóra og ritara eftir tilnefningu stjórnar.  ·         skýrsla stjórnar um starfssemi félagsins á liðnu starfstímabili.   ·         endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykktar.  ·         kosning formanns STAF  ·         kosning  meðstjórnenda og varamanna í stjórn  ·         kosning fulltrúa á þing BSRB  ·         önnur mál.      Stjórnin</description>
Korta og miðasala STAF
      <description>  Ágætu STAF félagar.  Eins og undanfarin ár mun félagið vera með til sölu:  Útilegukortið  komið  fyrir árið 2015 sem gildir yfir 40 tjaldsvæðum víðsvegar um landið eins og sjá má á síðunni þeirra www.utilegukort.is og kostar kr. 7.000 hjá okkur.  Hótelmiða: sem gilda á Hótel Eddu yfir sumarið og sjá má á síðunni þeirra www.hoteledda.is. ATH. Miðar fyrir 2015 eru ekki komnir.  og á Fosshótelum sem gilda allt árið og sjá má á síðunni þeirra www.fosshotel.is hótelmiðarnir kosta kr. 6.000 hjá okkur.     Munið eftir Orlofsstyrk STAF  Á aðalfundi STAF 2014 var ákveðið að gera tilraun með "Orlofsstyrk" til félagsmanna og gefst félagsmönnum áfram kostur á að sækja um styrk allt að 20.000 krónum.   Styrknum er úthlutað ef um leigu á orlofshúsi (annað en hjá STAF), fellihýsi / hjólhýsi, staðfestingu á td. flugmiða, leigu á bílaleigubíl, miða með skemmtiferðaskipi, eða vegna hótelkostnaðar þá annara en Foss- og Eddu hótela.      Umsóknareyðiblöð um styrkinn er að finna síðunni okkar www.123.is/staf undir skrár / orlofsmál / umsókn um ferðastyrk .  Framvísa þarf löglega númeruðum vsk-reikningum sem gefinn eru út á umsækjanda styrksins og skila síðan útfylltu umsóknarblaðinu til Jónu Kötu sem mun greiða styrkinn út eftir 1. september.     </description>
Orlofsuppbót
      <description>Orlofsuppbót 2015Að gefnu tilefni er athygli vakin á að þar sem kjarasamningar eru flestir lausir og ekki er búið að semja um orlofsuppbót þessa árs verður að miða orlofsuppbót við síðast gildandi kjarasamning(eða vegna ársins 2014). Ef það næst samkomulag um hækkun orlofsuppbótar fyrir þetta ár þá ber atvinnurekanda skylda til að leiðrétta greiðsluna þegar nýr kjarasamningur tekur gildi.-        Á árinu 2014 kr. 39.000 fyrir bæjarstarfsmenn-        Á árinu 2014 - 39.500 kr. hjá ríkisstarfsmönnumHinn 1. maí ár hvert skal starfsmaður sem er í starfi til 30. apríl fá greidda eingreiðslu, orlofsuppbót, er miðast við fullt starf næstliðið orlofsár. Greitt skal hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma. Tímavinnufólk fær greidda orlofsuppbót og miðast óskert fjárhæð hennar við 1.504 unnar dagvinnustundir á framangreindu viðmiðunartímabili.1.8.2  Hafi starfsmaður látið af störfum á orlofsárinu vegna aldurs eða eftir a.m.k. 3 mánaða (13 vikna) samfellt starf á orlofsárinu skal hann fá greidda orlofsuppbót hlutfallslega miðað við unninn tíma og starfshlutfall. Sama hlutfallsregla gildir ef starfsmaður var frá störfum vegna veikinda eftir að greiðsluskyldu vinnuveitanda lýkur eða vegna fæðingarorlofs, allt að sex mánuðum.Orlofsuppbót er föst fjárhæð og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum samningsins.Á orlofsuppbót reiknast ekki orlofslaun </description>